
Bilað mikið búið að vera gerast
Harpa Sif er flutt í bæinn eftir margra ára dvöl í sveitinni... og loksins þegar hún kemur aftur þá er ég að fara flytja í sveitina !! alveg merkilegt. Halli farinn aftur til bjórlandsins að drekka í sig menninguna..
Siggi - Tyrklandsferðin
Fór að skoða gamlar myndir eftir hittinginn í vikunni... vá hvað það var alltaf gaman hjá okkur... Tyrklandsferðin og Kick Off-in voru þær minningar sem stóðu uppúr
og útilegan í Vík í mýrdal 

Útilegan - Vík í Mýrdal


Siggi, Ég, Snorri og Jói
alveg merkilegt hvað strákarnir mínir geta ekki haldið sér á klakanum !!! Jói litli og Hinrik ætla að flytja til Argentínu fljótlega og Siggi er bara að bíða eftir að klára skólann til að geta flúið land. FLÓTTAMENN !!! 
Ástralski veitingarstaðurinn í Danmörku, borðaðir krókudílar, strútar og emúar 

Danmerkurferðin - Hard Rock
Ég, Siggi og Hinrik - Tyrklandsferðin
-------------
Skemmtum okkur annars vel á menningarnóttinni, við stelpurnar Elduðum saman, ég, Lilla, Linda, Lára og Berglind.
Linda
Ekkert smá flott hjá okkur
Bollan var fljót að klárast sem er líklegast vegna þess að Lára og LInda keyptu aðeins 1/2 lítra af vodka fyrir okkur 5...sem var alveg nóg fyrir okkur
sést langar leiðir að við erum engir atvinnumenn í drykkju...
Lilla & Lára
því næst var haldið af í bæinn til að drekka í sig menninguna.. Um klukkan 3 vorum við allar á því að fara nú að pilla okkur heim þar sem dansinn hafði staðið yfir stanslaust síðan flugeldasýningunni lauk. ERUM VIÐ AÐ TALA UM BRENNSLU EÐA HVAÐ 
Berglind beibí
Hittumst svo á sunnudeginum, átum MARENSTERTU sem ég bakaði og horfðum á Hárið